FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
HÖFUNDAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Buy this book
Fréttir
BARNA- OG UNGLINGAFRÆÐSLA Í MÝRASÝSLU 1880 - 2007 23. desember 2009

Út er komin bókin Barna- og unglingafræðsla í Mýrasýslu 1880-2007 eftir Snorra Þorsteinsson.
Hún er gefin út í tilefni af aldarafmæli skólahalds í Borgarnesi haustið 2008 og 50 ára afmæli skólahalds að Varmalandi 2005. Upphaf þess tímabils sem fjallað er um í bókinni miðast í aðalatriðum við setningu laga um uppfræðslu barna í skrift og reikningi árið 1880, sem leiddi til þess að víða voru ráðnir heimiliskennarar og stofnaðir skólar. Þáttaskil urðu þó er lög um fræðslu barna voru sett 1907, en í framhaldi af því komu til farskólar í einstökum hreppum og stofnaðir voru fastir skólar í kauptúnum, m.a. í Borgarnesi. Í bókinni er fjallað ítarlega um farskóla í sjö hreppum sýslunnar á árunum 1907 til 1954, barna- og unglingaskólann í Borgarnesi 1908 til 2007 og greint frá stofnun og starfi Varmalandsskóla frá 1954 til 2007. Þróunarsaga barnafræðslu í Mýrasýslu er einnig merkileg fyrir það að þar var settur á stofn fyrsti heimavistarskóli á landinu sem hreppar í heilli sýslu stóðu sameiginlega að.
Bókin er hátt á fjórða hundrað blaðsíðna í stóru broti. Fjöldi mynda prýðir hana og hefur víða verið leitað fanga til að gera þann þátt sem fjölbreyttastan.

TILBOÐSVERÐ - til þeirra er kaupa bókina á vef Uppheima.
ATH. ÞEGAR VERÐ BÓKAR SKULDFÆRIST EÐA ÞEGAR MILLIFÆRT ER Á REIKNING - ÞÁ GREIÐIST UM LEIÐ SENDINGARKOSTNAÐUR.

Tilboðsverð: 6.680,- (5.980 + 700)
Alm. verð: 7.680,- (6.980 + 700)



Til baka

Vitavörðurinn

Aldrei framar frjáls

NEMESIS

Hafmeyjan

Hvarfið

Land draumanna
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 431 3271 & 863 4972 I UPPHEIMAR@UPPHEIMAR.IS