FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
HÖFUNDAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Buy this book
Fréttir
BJARNI GUNNARSSON HLÝTUR VIÐURKENNINGU 22. janúar 2010

Ljóðstafur Jóns úr Vör, verðlaun í ljóðasamkeppni Lista- og menningarráðs Kópavogs, var afhentur í áttunda sinn í gær við hátíðlega athöfn. Ljóðstafinn hlaut Gerður Kristný fyrir ljóðið Strandir.
Auk Gerðar Kristnýjar hlaut Bjarni Gunnarsson sérstaka viðurkenningu fyrir ljóð sitt Smíðar, sem þykir sýna „tvær hliðar skáldskapar á hugvitssaman og jafnframt skáldlegan hátt“.
Bjarni, sem er ljóðskáld og þýðandi, starfar fyrir Uppheima og hefur sent frá sér ljóðabækurnar Lúpínublámi og Blóm handa pabba.
Dómnefndin var skipuð þeim Ingibjörgu Haraldsdóttur rithöfundi, Sigþrúði Gunnarsdóttur bókmenntafræðingi og Þórarni Eldjárn rithöfundi, sem var formaður.
Uppheimar óska Gerði Kristnýju og Bjarna innilega til hamingju með verðlaunin.
Til baka

Vitavörðurinn

Aldrei framar frjáls

NEMESIS

Hafmeyjan

Hvarfið

Land draumanna
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 431 3271 & 863 4972 I UPPHEIMAR@UPPHEIMAR.IS