FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
HÖFUNDAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Buy this book
Fréttir
ENN ER MORGUNN - komin í kilju 15. júlí 2010

ENN ER MORGUNN er söguleg skáldsaga eftir Böðvar Guðmundsson, höfund hinna ástsælu bóka um íslensku vesturfaranna – Híbýli vindanna og Lífsins tré.

Haustið 1936 kemur til Reykjavíkur ungur þýskur tónlistarmaður að nafni Jóhannes Kohlhaas. Hann er af gyðingaættum og hefur hrökklast undan nasistum, sem fara mikinn í heimalandi hans. Menningarlíf hins unga höfuðstaðar nýtur hæfileika hans um hríð, hann „aðlagast“ eins og það heitir nú á dögum, finnur meira að segja ástina og kvænist – stúlku af einni fínustu og áhrifamestu ætt landsins, Önnu Láru Knudsen. Bókin hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

„Enn er morgunn [er] vægðarlaus siðfræðistúdía um ábyrgð einstaklings undir samfélagslegum þrýstingi, sem og spurninguna um það hvað sé tryggð og hvað séu tryggðarof? Til hvers leiðir krafa kærleikans?“
Dr. Hjalti Hugason - ordid.hi.is
Til baka

Vitavörðurinn

Aldrei framar frjáls

NEMESIS

Hafmeyjan

Hvarfið

Land draumanna
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 431 3271 & 863 4972 I UPPHEIMAR@UPPHEIMAR.IS